Storkuberg myndast við kólnun úr glóandi bergbráð og flokkun bergsins byggist annars vegar á efnasamsetningu bráðarinnar og hins vegar á hraða storknunar. Storkuberg skiptist í gosberg, gangberg og djúpberg. Þegar storkuberg hefur veðrast og molnað í sundur berast hin uppleystu efni með vötnum til hafsins. þar sest bergmylsnan fyrir sem leir, sandur og möl. Leir og sandur þjappast síðan saman og myndar fast berg sem heitir setberg. Storkuberg er algengasta bergtegundin í jarðskorpunni.