Í jarðfræði er hugtakið steind notað um náttúrulegt, fast og kristallað efni með ákveðna efnasamsetningu. Langstærstur hluti bergs jarðskorpunnar fellur undir þessa skilgreiningu og eru steindir jarðar ákaflega fjölbreyttar. Fræðigreinin sem fjallar um steindir nefnist steindafræði og er hún ein af grunngreinum jarðfræðinnar. Steindir eru nokkurs konar byggingareiningar bergs. Meira og minna allt berg jarðar samanstendur af steindum og á það við aðra berghnetti hvar sem er í alheiminum, svo sem tunglið, bergreikistjörnur og loftsteina. Kvars er algengasta steindin á landinu.