Basalt heitir sú bergtegund sem Ísland er að mestu leiti gert úr og kallast blágrýti. Orðið „basalt“ er talið vera komið úr egypsku, en til forna fluttu Rómverjar grjót frá Grikklandi sem þeir kölluðu basaltes. Heitið hefur þannig ekkert með efnasamsetningu basalts að gera, eins og annars mætti ætla, því basalt er sagt vera „basískt“, nefnilega lágt í kísilsýru, en til dæmis ljósagrýti „súrt“ er ríkt í kísilsýru. Sú skipting í súrt og basískt byggist á þeirri ranghugsun 19. aldar manna að bergbráð sé kísilsýrulausn.