Berggrunnur landsins er aðallega myndaður úr föstu bergi. Þessu bergi er almennt skipt upp í þrjá flokka eftir uppruna: storkuberg, setberg og myndbreytt berg. Þar sem eiginlegt myndbreytt berg er hvergi sjáanlegt á yfirborði hérlendis verður ekki fjallað nánar um það hér. Storkuberg myndast við storknun hraunkviku, ýmist djúpt í jörðu, djúpberg, grunnt í jörðu, gangberg, eða á yfirborði, gosberg. Setberg er berg sem myndast úr lausum jarðlögum við samlímingu og hörðnun. Dæmi um setberg er sandstein og jökulberg.